11 september 2005

Hollar kryddbollur

7 dl heilhveiti
½ dl hveitiklíð
1 tsk kanill
½ tsk negull
1 tsk vanillusykur
½ tsk salt
7 tsk lyftiduft
5 dl létt AB-mjólk
  1. Blandið þurrefnunum saman í skál og bleytið upp með AB-mjólkinni.
  2. Mótið kúlur úr deiginu og raðið þeim á bökunarplötu sem smurð hefur verið með fat free úða.
  3. Bakið við 180-190°C í 35-40 mínútur.

23 maí 2005

Tryllt góð ostakaka með Snickers og banönum

150 gr Haustkex
75 gr smjör
- bræða smjörið og mylja kexið smátt. Blanda svo saman og þrýsta í botninn á formi eða skál, og líka smá upp með hliðum.

1 peli rjómi
6 Snickers (venjulega stærðin)
250 gr Mascarpone-ostur
2 bananar
- bræða snickersin í rjómanum við vægan hita, passa að hræra stöðugt. Þegar því er lokin skal taka pottinn af hitanum og setja Mascarpone-ostinn út í og hræra í þar til hann er alveg bráðinn.
- raðið einföldu lagi af bananasneiðum ofan á botninn og hellið svo ostablöndunni yfir.
- kælið í ísskáp í góða stund.

Salthnetur
1 banani
- skreytið kökuna með salthnetum og banana.

18 maí 2005

Líbanskar kjötbollur

1/2 bolli saxaður laukur
3 msk smjör
500 gr hakk
1 egg
2 brauðsneiðar lagðar í 1/2 bolla af mjólk
1 tsk salt
1/8 tsk pipar
1 bolli brauðmylsna
2 bollar hrein jógúrt

- Steikjið laukinn í 1 msk af smjöri uns hann er glær. Kælið smá.

- Blandið lauknum við hakk, egg, brauð og krydd. Mótið bollur úr blöndunni og veltið upp úr brauðmylsnu.
- Brúnið í 2 msk af smjöri. Hellið allri feitinni af nema 2 msk. Hellið þá jógúrt yfir bollurnar og sjóðið í 20 mínútur.
- Berið fram heitar með hrísgrjónum.
Múskatkaka frá Armeníu

2 bollar púðursykur
2 bollar hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
125 gr smjör
1 bolli mjólk
1 egg
1 tsk múskat
1/2 bolli valhnetur, saxaðar

- Blandið saman sykri, sigtuðu hveiti, lyftidufti og salti, Hnoðið smjöri við þar til blandan verður kornótt.
- Setjið helminginn af deiginu í vel smurt kökuform, 20 cm langt (brauðform).
- Leysið matarsódann upp í mjólk og bætið egginu og múskat við. Hellið yfir deigið sem var afgangs. Blandið vel, og setjið svo ofan á deigið sem er í forminu.
- Stráið söxuðum valhnetum yfir og bakið í forhituðum ofni við 175°c í eina klukkustund.
- Látið standa í 15 mínútur áður en kakan er tekin úr forminu og látin kólna á grind.

15 maí 2005

Kotasælubollur

5 dl mjólk
2 bréf þurrger
800 gr hveiti
2 dl kotasæla
ca. 1/2 - 1 dl (ólífu)olía
200 g rifinn ostur
4 tsk hvítlaukssalt
2 tsk aromat

- Mjólkin er hituð og þurrgerinu blandað saman við.
- Öllu öðru bætt við og hnoðað vel. Látið hefast í hálftíma.
- Búið til bollur og setjið þær á bökunarplötu, penslið með eggi.
- Bakist við 220°c í ca. 10 mínútur eða þangað til þær eru orðnar fallega brúnar að ofan.

Pizzasnúðar

2 pk þurrger
200 gr sykur
1 ltr. mjólk
200 gr smjörlíki
1,3 kg hveiti
1 msk salt
skinka, pepperóní, ostur, pizzasósa eða e-ð annað eftir smekk

- Hitið saman helminginn af mjólkinni ásamt smjörlíkinu. Leysið gerið upp í því. Allt hitt er sett út í og hnoðað vel.
- Setjið skinku, pepperóní og ost í blandara og mixið. Þá er pizzasósunni hrært saman við.
- Deigið er flatt út og fyllingunni smurt á. Þá er deiginu rúllað upp í lengjur og þær skornar í sneiðar sem raðað er á plötu.
- Bakað í 200°c heitum ofni þar til snúðarnir eru orðnir gullinbrúnir.


Salsasúpa

1 laukur
Hvítlaukur
1 krukka salsasósa
2 dósir niðursoðnir tómatar, stappaðir
4-6 dl vatn
1 lítil dós tómatpúrra
Rifinn ostur
Nachos flögur

Steikið lauk og hvítlauk í potti.
Skellið salsasósunni saman við ásamt niðursoðnu tómötunum, vatninu og tómatpúrrunni.
Látið malla í 10-15 mínútur.
Berið fram með nachos og rifnum osti sem sett er út í súpuna rétt áður en borðað er.

Gúllassúpa

500-600 gr nautakjöt
1-2 laukar
3-4 kartöflur
3-4 hvítlauksrif
1-2 paprikur
2 dósir niðursoðnir tómatar í mauki
salt, pipar og annað krydd eftir smekk

Brúnið nautakjötið og léttsteikið grænmetið (ekki saman).
Setjið kjötið og tómatamaukið í pott og hitið vel. Grænmetið er sett útí og látið krauma við vægan hita í að minnsta kosti klukkutíma.
Kryddað og smakkað til.
Ef súpan fær að krauma nógu lengi á lágum hita verður kjötið svo mjúkt að það þarf nánast ekki að tyggja það.

Borið fram með góðu brauði.


Svikinn héri

500 gr hakk
100 gr brauðmylsna
1 egg
1/2 dl mjólk
1 tsk kjötkraftur
1 tsk salt
1/2 tsk pipar
1 msk paprikuduft


Laukbaka
Fyrir 4-6

2 ½ hveiti
100 gr smjör eða smjörlíki
2 msk vatn
500 gr laukur
1-2 msk smjör
3 egg
2 dl sýrður rjómi
½ tsk jurtasalt
½ tsk svartur pipar
½ tsk tímían

Setjið hveitið í skál eða matvinnsluvél og myljið smjörið smátt og smátt út í þar til blandan verður að kornóttum massa.
Bætið vatninu út í og hnoðið deigið í kúlu.
Geymið deigið í 30-40 mínútur í kæli á meðan fyllingin er útbúin.
Skerið laukinn í þunnar sneiðar og mýkið hann í smjörinu á pönnu. Þeytið saman eggin og sýrða rjómann og bætið kryddinu út í.
Fletjið deigið út þannig að það passi í botn og upp kanta á bökuformi og forbakið botninn við 220°c í 10 mínútur (gott að setja baunir eða hrísgrjón á bökunarpappír ofan á deigið svo það aflagist ekki við baksturinn).
Dreifið lauknum á bökubotninn og hellið eggjamassanum yfir.
Bakið í 20 mínútur.
Berið fram með salati.


Grænmetisbaka
Botn
1 dl haframjöl2 dl hveiti2 msk ólífuolía eða Isio 4
100 gr hreint skyr
2 msk kalt vatn
Aðferð:
1 Blandið saman haframjöli og hveiti, olíu og skýri og bleytið í með vatni ef þarf.
2 Hrærið vel og hnoðið aðeins
3 Geymið deigið í ísskáp í að minnsta kosti 30-40 mínútur
4 Fletjið deigið út í mót, smyrjið með smá ólífuolíu og raðið grænmetinu á
5 Hellið sósu yfir og bakið í 30 mínútur við 200°C

Grænmeti
2 gulrætur, sneiddar í þunnar sneiðar
½ kúrbítur (zucchini), skorinn í búta
7 sveppir, sneiddir
½ eggaldin, skorið í smáar sneiðar
½ blaðlaukur, sneiddur í þunnar sneiðar

Sósa
2 egg
2½ mjólk
4 dl magur ostur (11%), 2 dl í sósuna, 2 dl yfir bökuna

Aðferð:
- Þeytið saman egg og mjólk
- Rífið ostinn og blandið 2 dl saman við
- Dreifið afganginum af ostinum yfir bökuna og setjið inn í ofn.- Gott er að hafa sósu með t.d. úr AB mjólk. Einfalt er að búa hana til: Blandið saman 2 dl AB mjólk, salti, pipar, hvítlauksrifi eða hvítlauksdufti, paprikudufti og kannski einhverju öðru góðu kryddi (t.d. Krakkakryddi frá Pottagöldrum).
- Berið fram með soðnum bygggrjónum eða hýðishrísgrjónum og fersku salati.

Graskersbaka
Botn:
1 bolli hveiti
1/8 tsk salt
1/3 bolli smjör, kælt
3 msk kalt vatn

Fylling:
2 egg
1 bolli púðursykur
½ bolli rjómi
450 gr graskersmauk
1 tsk kanill
½ tsk engifer
½ tsk múskat
½ tsk salt

Þeyttur engiferrjómi:
½ bolli rjómi (ekki matreiðslurjómi)
1 msk sykur
¼ tsk engifer

- Stillið ofninn á 220°c
- Hrærið saman hveiti og salti í stórri skál; bætið við smjöri í bitum. Vatni er bætt við og hrært saman með gaffli. Hnoðið deigið í kúlu.
- Fletjið deigið út á hveitistráðu borði (ekki hafa of mikið hveiti) í hring sem er ca 28 cm í þvermál. Setjið í bökumót sem er 26 cm í þvermál. Fjarlægið það deig sem fer út fyrir. Geymið botninn meðan fyllingin er útbúin.
- Hrærið egg á meðalhraða í stórri skál þangað til þau eru orðin þykk (ca 2-3 mínútur). Bætið við rest af hráefni í fyllinguna, hrærið uns allt er vel blandað saman (ca. 1-2 mínútur).
- Setjið fyllinguna ofan á botninn. Bakið í 10 mínútur. Lækkið þá hitann í 180°c. Bakið áfram í 40-50 mínútur. Stingið með hníf í miðju bökunnar til að athuga hvort hún sé tilbúin. Ef hnífurinn er hreinn eftir að það hefur verið gert er bakan tilbúin. Kælið alveg.
- Þeytið ½ bolla af rjóma í skál, á hæsta styrk . Bætið sykri og engifer við. Haldið áfram að þeyta uns rjóminn er orðinn stífur (ca. 1-2 mínútur).
- Berið bökuna frama með engiferrjómanum. Ef ekki á að bera bökuna strax fram þarf að geyma hana og rjómann í kæli.

Grænmetisbaka
Fyrir 6-8

Deig:
3 dl hveiti
50 gr smjör eða smjörlíki
1 dl kotasæla
1 msk vatn

Fylling:
250 gr sveppir
2 msk smjör eða smjörlíki
6 soðnar, kaldar kartöflur (500 gr)
1 blaðlaukur
2 hvítlauksrif
1 ½ tsk salt
½ tsk sítrónupipar
3 egg
2 dl sýrður rjómi
1 ½ dl kotasæla
½ tsk jurtasalt
1 dl rifinn, bragðmikill ostur

- Blandið smjörinu saman við hveitið með fingrunum þannig að blandan verði að kornóttum massa. Bætið kotasælunni og vatninu út í og hnoðið létt. Einnig má setja hveitið og smjörið í matvinnsluvél og blanda deigið þannig en þá má ekki hnoða of lengi.
- Fletjið deigið út á botn og upp kantana á bökuformi eða smurðu, lausbotna formi og geymið formið í kæli á meðan fyllingin er útbúin. - Skerið sveppina í sneiðar, bræðið smjörið og steikið sveppina í þeim í 1 mínútu. Skerið kartöflurnar og blaðlaukinn í sneiðar og léttsteikið með sveppunum, pressið hvítlaukinn út í og kryddið grænmetisblönduna.
- Þeytið saman eggin og sýrða rjómann og bætið kotasælunni og saltinu út í og hrærið ostinum að lokum saman við. Forbakið bökubotninn við 200°c í 10 mínútur.
- Setjið grænmetisfyllinguna í botninn og hellið eggjablöndunni yfir.
- Bakið neðst í ofninum við 180°c í 30-35 mínútur eða þar til fyllingin er farin að stífna í miðjunni.
- Berið fram með grænu salati.


15 október 2004

Svínakjöt með snjóbaunum

500 gr svínakjöt (meyrt), t.d. lund eða hryggvöðvi
50 gr kasjúhnetur
2 msk olía
2-3 hvítlauksrif, söxuð smátt
5 cm engiferbiti, saxaður smátt
250 gr snjóbaunir (sykurbaunir)
1 msk sojasósa
1 límóna
2-3 vorlaukar
  1. Kjötið er skorið í sneiðar, eins þunnar og mögulegt er, og þær síðan í bita. Hneturnar ristaðar á þurri pönnu þar til þær eru rétt byrjaðar að taka lit en síðan hellt á disk og látnar kólna.
  2. Wokpanna hituð mjög vel, 1 msk af olíu hellt í hana og síðan er kjötinu bætt á hana. Veltisteikt við háan hita þar til kjötið hefur allt tekið lit en þá er það tekið upp og sett á disk.
  3. Hitinn er lækkaður, afgangnum af olíunni er bætt á pönnuna og síðan hvítlauk og engifer. Veltisteikt í um 1 mínútu og síðan eru baunirnar og hneturnar settar á pönnuna ásamt sojasósu. Safinn úr límónunni kreistur yfir og steikt í 2 mínútur.
  4. Kjötið er sett aftur á pönnuna, hitað í gegn, smakkað til, vorlaukunum hrært saman við og borið fram strax með hrísgrjónum.



Kjötbollur með kryddjurtum

800 gr svínahakk
2 laukar, saxaðir
3-4 hvítlauksrif
2 msk ólífuolía
1/2 tsk þurrkuð tímjan
10 basilíkublöð e-a 1-2 msk pestósósa
nýmalaður pipar og salt
1 egg
75 gr hveiti, eða eftir þörfum
3 msk matarolía
vatn eftir þörfum
1 msk smjör
1 lítil gulrót
1 lárviðarlauf
sósujafnari og e.t.v. sósulitur
  1. Annar laukurinn, hvítlaukur, olía og kryddjurtir sett í matvinnsluvél og maukað. Kryddað með pipar og salti og síðan er eggi og hveiti hrært saman við. Öllu hnoðað við hakkið og bollur mótaðar úr því (hakk í 1-2 bollur þó skilið eftir).
  2. Tvær matskeiðar af olíu eru hitaðar á stórri pönnu og bollurnar settar á hana. Brúnaðar á þremur hliðum. Dálitlu vatni er hellt yfir og látið malla þar til bollurnar eru soðnar í gegn.
  3. Á meðan er smjör og 1 msk olía hitað í potti. Laukurinn sem eftir er settur út í ásamt gulrótinni og farsinu sem skilið var eftir og steikt í nokkrar mínútur. Hrært oft á meðan. 300-400 ml af sjóðandi vatni hellt yfir og látið sjóða í um 10 mínútur. Soðið er svo síað, hellt aftur í pottinn og soðinu af bollunum hrært saman við. Sósan smökkuð til og e.t.v. dekkt með sósulit. Hellt yfir bollurnar og borið fram.


Kryddsoðnar kjúklingabringur

400 gr kínversk grænmetisblanda, fyrst
100 ml sojasósa
2 msk hunang
2-3 hvítlauksrif, söxuð
1 tsk kínversk fimm krydd-blanda
4 kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar
1 msk olía
  1. Látið grænmetið þiðna. Setjið sojasósu, hunang, hvítlauk og fimm krydda-blöndu á pönnu, hrærið vel saman og hitið að suðu.
  2. Setjið kjúklingabringurnar á pönnuna, leggið lok yfir og sjóðið þær við fremur vægan hita í um 4-5 mínútur á hvorri hlið, eftir þykkt; best er að skera í eina bringuna til að athuga hvort þær séu steiktar í gegn.
  3. Hitið á meðan olíuna í wokpönnu eða á stórri pönnu og snöggsteikið grænmetið við háan hita í 2-3 mínútur. Dreifið því á fat og leggið kjúklingabringurnar ofan á, eða skerið þær í sneiðar á ská og raðið ofan á grænmetið.



Smalabaka með baunum

1 msk olía
1 laukur, saxaður
400 gr nautahakk
1 msk hveiti
1 msk Worcestersósa
1 msk tómatþykkni (paste)
1/2 tsk þurrkuð basilíka
nýmalaður pipar
salt
vatn eftir þörfum
1 dós bakaðar baunir
700 gr kartöflur
50 gr smjör
mjólk
75 gr rifinn ostur
  1. Olían er hituð í potti og laukurinn látinn kraum í henni í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Hakkinu bætt úr í og steikt þar til það hefur allt tekið lit; hrært oft á meðan. Hveitinu hrært saman við og síðan Worcestersósu, tómatþykkni, basilíku, pipar, salti og hálfum bolla af vatni eða svo. Látið malla við vægan hita undir loki í um 15 mínútur og meira vatni bætt við ef þurfa þykir. Baununum hrært saman við, smakkað og bragbætt eftir smekk.
  2. Á meðan hakkið mallar eru kartöflurnar afhýddar, skornar í bita, soðnar þar til þær eru rétt orðnar meyrar og síðan stappaðar með smjörinu og svolítilli mjólk. Kryddað með pipar og salti og ostinum hrært saman við.
  3. Grillið í ofninum er hitað. Hakk- og baunablandan er sett í eldfast mót, kartöflustöppunni dreift yfir eða sprautað ofan á og sett undir grillið þar til stappan hefur tekið góðan lit.


Fiskbuff

10 cm bútur af gúrku
salt
1 dós sýrður rjómi (10%)
ferskar kryddjurtir eftir smekk
nýmalaður pipar
400-500 gr soðin ýsa eða annar fiskur
400 gr soðnar kartöflur
50 gr smjör
1 egg
1 eggjarauða
1 tsk fínrifinn engifer
  1. Byrjað er á að búa til ídýfuna: Gúrkan er rifin á rifjárni, sett í sigti, salti stráð yfir og látin standa í 15-20 mínútur. Þá er hún skoluð úr köldu vatni, hellt á viskastykki og vætan pressuð úr henni. Sett í skál ásamt sýrða rjómanum og kryddjurtunum og hrært vel saman. Kryddað með pipar eftir smekk.
  2. Fiskurinn er losaður í sundur í flögur og stappaður með kartöflunum og helmingnum af smjörinu. Eggi, eggjarauðum og engifer er hrært saman við, smakkað til með pipar og salti og mótað í buff. Ef blanda er of þunn má hræra svolitlu maísmjöli eða kartöflumjöli saman við.
  3. Afgangurinn af smjörinu er bræddur á pönnu og buffin steikt við meðalhita þar til þau eru gullinbrún á báðum hliðum.


Kínverskar fiskibollur

800 gr fiskhakk
3 vorlaukar, saxaðir smátt
2 hvítlaukrif, söxuð smátt
2 tsk engifer, rifinn
1 msk sojasósa
1 tsk sykur
salt
1 msk olía
2 msk maísmjöl
olía til steikingar
  1. Allt nema olían sem steikja á úr er sett í skál og hrært vel saman. Mótað í 8-10 bollur eða buff.
  2. Olía hituð á stórri, þykkbotna pönnu og bollurnar steiktar við meðalhita í um 5 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru gullinbrúnar og gegnsteiktar.
  3. Bornar fram með soðnum hrísgrjónum eða eggjanúðlum.


Kókoskarrífiskur með kjúklingabaunum

700-800 gr þorsk- eða ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð
1 msk karríduft, meðalsterkt eða eftir smekk
3/4 tsk kummin
nýmalaður pipar
salt
2 msk olía
1 laukur, saxaður
400 ml kókosmjólk (1 dós)
1 dós kjúklingabaunir
2-3 vorlaukar, saxaðir
1/2 sítróna

1. Fiskurinn er skorinn í stykki. Karríi, kummini, pipar og salti er blandað saman og helmingurinn af blöndunni stráð yfir fiskinn. Látinn liggja í litla stund.

2. Olían er hituð á pönnu og laukurinn steiktur við meðalhita þar til hann er farinn að taka lit. Þá er hann tekinn af pönnunni og settur á disk.

3. Hitinn er hækkaður og fiskurinn brúnaður í um 1 mínútu á hvorri hlið. Afgangurinn af kryddinu hrært saman við kókosmjólkina og henni hellt á pönnuna og síðan er baununum hellt yfir (hellið leginum af þeim fyrst). Látið malla í 2-3 mínútur. Vorlauknum er stráð yfir og dálítill sótrónusafi kreistur yfir. Látið malla í 1-2 mínútur í viðbót eða þar til fiskurinn er rétt soðinn í gegn.

4. Sósan er smökkuð til og e.t.v. bragðbætt með pipar, salti og sítrónusafa. Borið fram með soðnum hrísgrjónum eða grænu salati og e.t.v. brauði.


Hrásalat frá Jamaíka

4 bolli niðurskorið hvítkál
1/4 bolli niðurskornar gulrætur
1/2 bolli brytjaðar valhnetur
1/2 bolli mæjónes
2 msk sykur
1 msk eplaedik
1 msk grillkrydd


Karabískur engifer-kalkúnn

1 kg kalkúnabringa, skinnlaus
1/4 bolli sojasósa
1/4 bolli þurrt sherrí
2 msk apríkósumarmelaði
1/2 tsk engifer
1/2 bolli vatn
1/4 bolli púðursykur
2 msk grænmetisolía
2 tsk sítrónusafi
1 hvítlauksrif, saxað

Berið fram með hrísgrjónum og niðurskornum ávöxtum.


Síðasta vetur héldum við stelpurnar í skólanum veislu í tíma og var þemað pinnamatur og smáréttir. Hér koma nokkrar uppskriftir úr þeim tíma:

Laxa-kavíarpaté á ristuðu brauði

300 g reyktur lax
125 g brætt smjör
2 lítil box sýrður rjómi
2-3 blöð matarlím
hvítur pipar
100 g rauður kavíar

Setjið laxinn í mixara ásamt brædda smjörinu og sýrða rjómanum. Bleytið matarlímið í vatni og leysið upp í sjóðandi vatni (2 msk). Blandið saman við laxafarsið kryddið með pipar. Blandið kavíar saman við. Setjið í ísskápinn (má setja síðan í frysti). Sprautið maukinu á ristað brauð sem skorið hefur verið í hæfilega litla þríhyrninga.

Kalkúnasnitta

Ítalskt brauð (snittubrauð)
Sólþurrkaðir tómatar, mauk
Salat
Kalkúnaálegg
Brieostur
Laukur

Skerið tómatana, fjarlægið kjarnann og saxið smátt niður. Saxið niður basilíkuna og blandið henni saman við tómatana, dreifið örlitlu af ólífuolíu á brauðsneiðarnar og setjið smá mozzarellaost yfir. Grillið í ofni þar til osturinn er byrjaður að bráðna.

Bruscettesnitta

Ítalskt brauð (snittubrauð)
Tómatar
Basilíka
Ólífuolía
Mossarellaostur

Smyrjið brauðið með tómatmaukinu og setjið salatið yfir. Skerið kalkúnabringuna niður, brjótið hana saman og leggið yfir salatið. Setjið góða sneið af ostinum ofan á og að lokum einn laukhring og tómatmauk.

Skinkurúllur m/ jalapeno

250 g rjómaostur
75 g söxuð skinka
2 msk niðursoðinn jalapenopipar, saxaður
2 vorlaukar, smátt saxaðir
1/2 lítil rauð paprika, smátt söxuð
6 hveititortillur

Hrærið ostinn með skinku, jalapeno, vorlauk og papriku. Skerið kantana á tortillunum til þannig að þær séu sem næst ferningar. Skiptið ostablöndunni á þær og vefjið þær í þétta en nokkuð svera vindla utan um fyllinguna, u.þ.b. 3 cm. í þvermál. Skerið hvern vafning í 6 sneiðar og stingið tannstöngli í gegn. Kælið sneiðarnar og berið fram sem pinnamat.

Hummus

1 hvítlauksrif
1/2 hnefi af steinselju
1 vorlaukur
1 ½ bolli soðnar kjúklingabaunir( ¾ bolli ósoðnar)
3 msk tahini (sesamsmjör)
3 msk sítrónusafi
1/2 msk tamari sósa (sojasósa úr heilsuhúsinu)
1/2 tsk salt
1/4 tsk cuminduft
cayennepipar á hnífsoddi

Setjið baunirnar í 1 ½ bolla af vatni yfir nótt. Sjóðið þær í 1 ½ klst. Setjið hvítlauk, steinselju,og vorlauk í matvinnsluvél og maukið. Bætið öllu öðru út í og maukið þar til hræran er silkimjúk. Kryddið með cummin og cayenneapipar eftir smekk. Borið fram með grænmeti eða kexi.

Smjördeigssnúðar með sesamfræjum

2 plötur frosið smjördeig
6 skinkusneiðar
1 ½ bolli rifinn ostur
dijon sinnep
sesamfræ
egg

Saxið skinkuna fremur smátt. Fletjið út smjördeigið, smyrjið dijon sinnepi á degið og dreifið skinkunni og ostinum yfir. Rúllið deginu upp og skerið í litla snúða. Pískið eggið og penslið snúðana. Stráið dálítið vel af sesamfræjum yfir og bakið við 200°C í u.þ.b. 15 mín.

Innbakaðar ólífur

1 krukka svartar ólífur
150 g hveiti
100 g smjör
125 g Maribóostur
cayennepipar á hnífsoddi
1 sundurslegið egg

Myljið smjörið saman við hveitið og hnoðið rifnum ostinum og piparnum saman við. Fletjið degið út og stingið u.þ.b. 4 sm kringlóttar kökur út. Pakkið ólífunum inn, penslið með egginu og bakið við 200°C í u.þ.b. 20 mín.


Epla- og kotasælusalat

1 gult epli
1 rautt epli
1/4 lítið jöklasalathöfuð
1/2 sítróna
1 dós (200 g) kotasæla
1/4 tsk paprikuduftkumin á hnífsoddi
nýmalaður pipar
salt
söxuð steinselja eða minta (má sleppa)

1. Eplin kjarnhreinsuð og e.t.v. afhýdd. Skorin í bita og sett í skál
2. Jöklasalatið skorið í þunnar ræmur og sett saman við
3. Safi úr sítrónunni kreistur yfir
4. Kotasæla, paprikuduft, kumin, pipar og salt hrært saman og síðan blandað saman við salatið
5. E.t.v. skreytt með söxuðum kryddjurtum

Kjúklingur í sojasósu

350 g kjúklingabringur, skornar í bita
1 meðalstór rauðlaukur
niðurskorið grænmeti, t.d. græn paprika eða gulrætur og 1 dós sveppir
engifer
svartur pipar
sojasósa
matarolía til steikingar

1. Brúnið kjúklinginn á pönnu
2. Steikið grænmetið á pönnu
3. Kryddið m/ svörtum pipar og engiferi
4. Bætið sojasósu út á (e. sm.) og látið malla í u.þ.b. 10 mín. eða þar til kjúklingurinn er eldaður alveg í gegn
5. Borið fram með hrísgrjónum og fersku salati

Eplapie

125 g smjörlíki
125 g hveiti
125 g sykur

4-6 græn epli
kanilisykur
súkkulaðirúsínur
salt- eða heslihnetur

Hveiti, smjörlíki og sykri hnoðað saman. Eplin flysjuð og skorin í sneiðar eða bita, sett í eldfast mót. Kanilsykri (mikið af honum) er stráð yfir. Deigið sett yfir og kanilsykri stráð yfir það. Súkkulaðirúsínur og hesli- eða salthnetur eru settar yfir u.þ.b. 5 mín áður en pæjið er tekið út. Hitið í u.þ.b. 20 mín við 200°C.

Franska súkkulaðikakan hennar Sírenu

200 g smjörlíki
200 g súkkulaði
4 egg
2 dl sykur
1 dl hveiti

Smjörlíki og súkkulaði er brætt saman í potti. Egg og sykur er þeytt saman uns blandan verður fluffy. Þá er blöndunum tveimur blandað saman og hveiti sett út í. Sett inn í ofn í 30-45 mín v/175°C. (misjafnt eftir ofnum).

krem:
70 g smjörlíki
200 g súkkulaði
2 msk sýróp

Brætt saman í potti. Sett á kökuna þegar hún hefur kólnað svolítið.


12 september 2004

Kartöflusalat frá Armeníu

4 meðalstórar kartöflur
1 tsk salt
1 msk þurrkuð mynta
1/2 stór rauðlaukur, sneiddur
1/4 bolli ólífuolía
1/4 bolli ferskur sítrónusafi


08 september 2004

Kjúklingagrillpinnar

400 g kjúklingabringur
1 zuccini
1/2 chilipipar
2-3 cm engifer
2 límónur
1 dl ólífuolía
1 laukur
salt

Chilipiparinn er saxaður mjög smátt. Engiferið er rifið niður í rifjárni. Límónan er kreist út í skálina, olíunni er því næst bætt út í og kryddað. Laukurinn og zuccini skorið í stóra bita. Kjúklingurinn, laukurinn og zuccini sett á spjót og allt marínerað í um 1 klst. Gæta þarf þess að kjúklingurinn sé grillaður í gegn.

Amerískar pönnukökur a la Dagný

1 egg
1 bolli mjólk
1 msk matarolía
1 ¼ bolli hveiti
2 msk sykur
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt

Blandið saman egg, mjólk og olíu og blandið síðan þurrefnum saman við. Smá olía eða smjör sett á pönnu. Hellan hituð og pannan sett á. Um 1/4 bolli deig á pönnuna. Bakað og snúið við þegar er orðið alsett loftbólum.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?